kur,
þríleikur, Gyllti Sensual áttavitinn, Lúmski hn&ia
te;furinn, Skuggasjónaukinn Sensual Chicks Online Gt Gt" href="http://to.bestinnocentwoman.com/feed//gt/gt.htm" />
kur,
þríleikur
kur,
þríleikur
tal
1
l
2
Höfundur þríleiksins: PHILIP PULLMAN
|
|
* Æviágrip |
|
Á þessari síðu er ýmislegt að finna sem ég hef tínt saman um höfund myrkraefna-þríleiksins, Philip Pullman. Ég er mikill aðdáandi hans og hef hitt hann þrisvar og spjallað við hann. Myndin af okkur var tekin á barnabókaþingi í Leeds á Englandi 2002, þegar ég afhenti honum tvær fyrri bækurnar á íslensku. Hann er mjög ánægður með kápumyndirnar (eftir Margréti Laxnes). |
|
|
ÆVIÁGRIP Philip Pullman fæddist í Norwich 19. október 1946, sonur Alfred Outram (flugmanns) and Audrey Evelyn (áður Merrifield) Pullman. Hann gekk fyrst í skóla í Ysgol Ardudwy, Harlech og Gwynedd, og loks háskólann í Oxford, en útskrifaðist þaðan 1968. Hann kvæntist Judith Speller árið 1970 og þau eiga tvo syni, Jamie, sem er atvinnuvíóluleikari og Tom, sem er enn í skóla. Hann kenndi á miðstigum grunnskóla í nokkur ár og skrifaði um leið skólaleikrit fyrir börnin. Frá 1988-96 vann hann í hlutastarfi sem bókmenntakennari við Westminster College í Oxford, þar sem hann kenndi viktoríubókmenntir, frásagnahefð og skapandi skrif. Eitt af því sem hann sérhæfði sig í var munnleg sagnahefð. Hann hefur skrifað mikið um samband texta og ímynda, og flutt marga fyrirlestra um það efni. Philip Pullman er einn af forsvarsmönnum the Centre for the Children's Book og sat í dómnefnd Guardian barnabókaverðlaunanna 1994 og 1996. Hann er hættur að kenna og vinnur við skriftir í litlum kofa í bakgarðinum heima hjá sér í Oxford. Önnur áhugamál hans eru m.a. teikning og tónlist. Frá eigin brjósti segi ég (þýðandinn Anna Heiða) að hann er frábær maður, ekki bara góður rithöfundur. Ég hef hlustað á hann halda fyrirlestur um THE AMBER SPYGLASS og spjallað við hann, bæði á ráðstefnum og eins í gegnum tölvupóst. Hann útskýrði svo skemmtilega í ofannefndum fyrirlestri hvernig hann fann upp fólk á hjólum sem kemur fyrir í þriðju bókinni! Ég sendi honum eitt sinn tölvupóst vegna þess að ég rakst í þýðingunni á hvítan sendiferðabíl. Þar sem menn ferðast með gufulestum og loftbelgjum fannst mér svo ótrúlegt að þar væru bílar! Hann svaraði mér í tölvupósti í janúar 2000, eins og sjá má: Komdu sæl og gleðilega nýja öld!
dPhilip Pullw man, barnab&aeli |